Kaktusar og ræktun þeirra
Þetta er stórfalleg og nytsöm bók um þær sérkennilegu pottaplöntur sem nefndar eru einu nafni kaktusar. Fjallað er almennt um kaktusa og hvað þurfi til að þeir vaxi sem best, birtuþörf þeirra, vökvun og næringu, umpottun og annað sem komið getur eigendum slíkra plantna að gangi.
En meginuppistaða bókarinnar er umfjöllun um einstakar kaktusategundir, uppruna þeirra, heppilegustu ræktunaraðstæður og þarfir plantnanna. Tugir litmynda prýða bókina. (heimild: bakhlið bókarinnar)
Upphaflega var orðið kaktus samheiti yfir margs konar þyrnóttar plöntur. Sænski náttúrufræðingurinn Linné notaði orðið fyrstur í grasafræðinni og safnaði þessum plöntum undir ættarheitið Cactaceae. Bókin er skipt niður í 36 kafla.
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.