Íslenzkir þjóðhættir – Jónas frá Hrafnagili
Íslenzkir þjóðhættir er eitt mikilvægasta rit Íslandssögunnar um menningu, siði og lifnaðarhætti þjóðarinnar á 19. öld. Í verkinu safnar og lýsir Jónas Jónasson frá Hrafnagili fjölbreyttum þáttum daglegs lífs, trúarbrögðum, hátíðarhöldum, búskaparháttum, matarvenjum og margvíslegum siðum Íslendinga.
Bókin er ómetanleg heimild um þjóðlíf fyrri tíma og hefur lengi verið grundvallarrit í þjóðháttafræði á Íslandi.
Um höfundinn
Jónas Jónasson frá Hrafnagili (1856–1918) var prestur, fræðimaður og einn af fremstu þjóðháttafræðingum Íslands. Hann vann ötullega að því að skrá og varðveita lýsingar á lifnaðarháttum Íslendinga, áður en breytingar iðnvæðingar og nútímavæðingar tóku að breyta samfélaginu. Verk hans njóta enn mikillar virðingar og eru ómetanleg heimild fyrir bæði fræðimenn og áhugasama lesendur.
Bókin Íslenzkir þjóðhættir eftir Jónas Jónsson frá Hrafnagili eru 14 kaflar (með mörgum undirköflum), þeir eru
- Formáli
- Helstu skammstafanir
- Daglegt líf
- Aðalstörf manna til sveita
- Veðurfarið
- Skepnurnar
- Hátíðir og merkisdagar
- Skemmtanir
- Lífsatriðin
- Heilsufar og lækningar
- Hugsunar- og trúarlífið
- Húsaskipun og byggingar
- Skrá um atriðisorð
- Nafnaskrá
Ástand bók: gott en lausakápuna vantar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.