Íslenskir sjávarhættir I.-V. bindi

Íslenskir sjávarhættir er fræðirit eftir Lúðvík Kristjánsson, sem var gefið út af Menningarsjóði í fimm bindum á árunum 1980-1986, og fjallar um íslenska sjávarhætti fyrr á öldum.

Ritið einblínir á tímabilið fyrir iðnbyltingu, þegar farið var til sjós á árabátum, en höfundur segir að það tímabil spanni hátt í 10 aldir, allt frá landnámi fram á 19. öld. Ritið er tileinkað minningu íslenskra sjómanna fyrr og síðar. Það er víðfemt, en viðfangsefni þess er m.a. á sviði menningarsögu, atvinnusögu, tæknisögu, náttúrusögu og þjóðfræði. Fróðleikurinn sem þar kemur fram er m.a. byggður á viðtölum við hátt í 300 gamla sjómenn og öðrum aðilum sem voru kunnugir íslenskum sjávarháttum eins og þeir voru stundaðir í gamla daga. Þeir elstu þessara heimildamanna voru fæddir á árunum 1850-60. Höfundur byrjaði snemma að safna heimildum og tileinkaði fræðistörfum sínum eftir 1964 nánast alfarið íslenskum sjávarháttum, en eiginkona hans Helga Jónsdóttir Proppé aðstoðaði við verkið.

Íslenskir sjávarhættir er af sumum talið einstakt ritverk á heimsvísu, þar sem engar aðrar þjóðir hafa tekið saman sambærilegt ritverk um sína sjávarhætti. Þetta glæsilega verk eru fimm bindum og mjög vel með farið.

Bókin Íslenskir sjávarhættir efnisyfirlit eftir bindum: Ath undir hverjum kafla eru undirkaflar.

Fyrsta bindi (1980): 

  • Fjörunytjar og strandjurtir
  • Fjörugrös – sjóarkræða
  • Marinkjarni
  • Ætiþang og ætiþari
  • Þang- og þarafróður – fjörubeit
  • Þari og þang til eldiviðar
  • Skeljar og skelfiskur
  • Margt má fá úr fjörunni
  • Strandjurtir
  • Matreki
  • Rekaviður
  • Afmarkanir og skipting á rekaavið
  • Stólsrekar
  • Klausturrekar
  • Kirkjurekar
  • Umboðsrekar – leigurekar
  • Leiguliðagagn
  • Rekaköst og rekabönn
  • Rekavöktun – viðarbjörgun
  • Viðarlýsing – viðarval
  • Rekaviðarflutningar
  • Vogrek
  • Viðarvinnsla
  • „Tóflin afla tjánna“
  • Selur
  • Uppdráp
  • Skutulveiði
  • Látraveiði – netaveiði
  • Nótaveiði
  • Stöðuveiði – fyrirstaða
  • Selveiði í rekanætur
  • Selveiðibrellur
  • Selur í þjóðtrú og leikjum
  • Summary in English

Annað bindi (1982):

  • Verstöðvatal (5 kaflar)
  • Íslenzki árabáturinn (42 kaflar)
  • Vertíðir (6 kaflar)
  • Verleiðir og verferðir (5 kaflar)
  • Verbúðir (4 kaflar)

Þriðja bindi (1983) ATH Áritað af höfundi:

  • Skinnklæði og fatnaður (14 kaflar)
  • Uppsátur (3 kaflar)
  • Uppsátursgjöld (7 kaflar)
  • Skyldur og kvaðir (2 kaflar)
  • Veðurfar og sjólag (1 kafli)
  • Veðrátta í verstöðvum ( 7 kaflar)
  • Fiskimið (8 kaflar)
  • Viðbúnaður vertíða og sjóferða (4 kaflar)
  • Róður og sigling (3 kaflar)
  • Flyðra (8 kaflar)
  • Happadrættir og hlutabót (3 kaflar)
  • Hákarl (21 kafli)
  • Þrenns konar veiðarfæri (3 kaflar)

Fjórða bindi (1985):

  • Beita og beiting (10 kaflar)
  • Veiðar með handfæri (1 kafli)
  • Veiðar með lóð og þorskanetum (2 kaflar)
  • Lending – uppsetning – fjöruburður (3 kaflar)
  • Skiptivöllur – aflaskipti (3 kaflar)
  • Landlegur (15 kaflar)
  • Vergögn (2 kaflar)
  • Hagnýting fiskifangs (5 kaflar)
  • Þorskhausar (16 kaflar)
  • Skreiðarferðir og fiskfangaverzlun (4 kaflar)

Fimmta bindi (1986):

  • Hvalur (11 kaflar)
  • Rostungar (4 kaflar)
  • Sjávarfuglanytjar (27 kaflar)
  • Þjóðtrú og getspeki (7 kaflar)
Ástand:  Einstaklega vel með farin bæði innsíður og kápa
ATH! Bindi III er áritað af höfundi með orðunum: „Kær kveðja Njóttu vel – Lúðvík Kristjánsson“
Íslenskir sjávarhættir I-V bindi - Lúðvík Kristjánsson - Menningarsjóður 1980-1986

kr.24.000

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 9,95 kg
Ummál 22 × 18 × 31 cm
Blaðsíður:

2530 (öll fimm bindin) I. b. bls. 472, II. b. bls. 516, III. b. bls. 498, IV. b. bls. 546 og V. b. bls. 498

ISBN

978997932474

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Menningarsjóður

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1984-1986 (1. útgáfa)

Höfundur:

Lúðvík Kristjánsson