Íslensk stílfræði
Fátt er merkilegra í rannsóknum á rituðu máli en könnun þess hvernig menn skrifa, hvaða aðferðir þeir hafa til að segja hug sinn. Þetta er viðfangsefni stílfræðinnar. Þó að hún sé ung fræðigrein, á hún sér ævafornar rætur í mælskufræði fornaldar, sem aftur hefur haft áhrif á íslenskar bókmenntir frá öndverðu.
Þessi bók er fyrsta alhliða stílfræðibókin á íslensku. Hún skiptist í tvo hluta: Fyrri hlutinn veitir sýn yfir sögu mælskufræði og nútímastílfræði, auk þess sem gerð er grein fyrir mismunandi aðferðum til stílgreiningar. Síðari og meginhluti verksins er íslensk stílsaga, sem öllum bókmenntaunnendum ætti að vera mikill fengur að. Þar er fjallað um þróun íslensks stíls allt frá upphafi bókmennta okkar til dagblaðastíls nútímans. Hér er í fyrsta sinn á aðgengilegan hátt gerð grein fyrir stílþróun á öllum öldum ritaðs íslensks máls, og jafnframt eru lesendum hér búin í hendur tæki til að stílgreina texta á eigin spýtur.
Bókin Íslensk stílfræði er skipt í tvo hluta, þeir eru:
- I. hluti: Stílfræði og stílgreining
- II. hluti: Íslensk stílsaga.
Ástand: gott og vel með farin.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.