Íslandsmyndir Mayers 1836
Árið 1986 voru 150 ár liðin frá Íslandsleiðangri franska vísindamanna undir stjórn Paul Gaimards. Með í förinni var málarinn Auguste Mayer sem lýsti landi og þjóð í listaverkum, sem eru stórmerkar heimildir um íslenskt þjóðlíf á fyrri tíð. allar Íslandsmyndir Mayers, sem þekktar eru, hátt í 200 að tölu, birtast hér – flesar í lit í fyrsta sinn. Í formála og myndatextum er gerð grein fyrir leiðangrinum og menningarsögulegu gildi hans.
Bókinni fylgir kver með litprentaðri, fágætri frumgerð kvæðanna sem flutt voru Gaimard til heiðurs í veislunni góði í Höfn 1839. í kverinu er einnig ritgerð dr. Finnboga Guðmundssonar landsbókavörð þar sem hann varpar nýju ljósi á kvæði Jónasar Hallgrímssonar. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Íslandsmyndir Mayers 1836 er skipt niður í sex kafla, þeir eru:
- Formáli á íslensku, frönsku og ensku
- Myndir Auguste Mayer
- Myndskýringar
Fylgirit
- Íslensk kvæði og ræða sem var flutt í veislu til heiðurs Paul Gaimard í Kaupmannahöfn 16. janúar 1839
Ástand: vel með farin bæði askja, innsíður og kápa.