Hrói höttur en á ferð
Hrói höttur er hetja skógarins. Fógetinn grimmi og Jóhann prins reyna eins og þeir geta að hafa hendur í hári Hróa sem rænir frá þeim ríku og gefur þeim fátæku. En það gengur illa því Hrói er bæði hugrakkur og snjall
Ástand: gott
Hrói höttur er persóna úr enskum þjóðsögum frá miðöldum. Sögurnar gerast á Englandi, nánar til tekið í Skírisskógi (e. Sherwood Forrest) í Nottinghamshire í Englandi. Flestir sagnfræðingar eru þó á því að Hrói hafi verið fæddur í Loxley í suðurhluta York-héraðs og að hann sé grafinn í Kirkleesklaustri í vesturhluta Yorkhéraðs.
Skírisskógur er 4,23 km² að stærð í dag og er í eigu bresku krúnnar og er í Notthinghamshire á Englandi í kringum þorpið Edwinstowe. Svæði þetta hefur verið skógur síðan á síðustu ísaldar. Í Skírisskógi er hin frægu eikatré Major Oak þessi eikatré eru samkvæmt þjóðsögunni um Hróa hött hans athvarf. Þessi eikatré eru um 800 – 1000 ára gömul, áætlað er að hvert tré vegi um 23 tonn og er 28 metrar á hæð.