Holtamannabók I Holtahreppur
Þriðja bókin í bókaflokki um nokkrar sveitir í Rangárvallasýslu, byggð á frumdrögum Valgeirs heitins Sigurðssonar fræðimanns á Þingskálum. Í Holtamannabók I segir frá jörðum í Holtahreppi og fólkinu sem þær hefur setið frá því sögur hófust og til þessa dags. Eignarhald á jörðum er rakið og landamerkjum lýst. Getið er allra bænda og húsmæðra sem heimildir hafa fundist um, ættir þeirra og æviferill rakinn eftir föngum og sagt frá börnum þeirra. Lýsingar eru af mörgu fólki, myndir birtar af hundruðum manna og bæði gömlum bæjum og húsum nútímans. Sagt er frá þéttbýlisstöðum í sveitinni og íbúum þeirra og saga skólans á Laugalandi rakin. Myndir af vinnandi fólki og nokkrum atburðum í mannlífinu eru í bókinni, í henni er einnig að finna ljóð og lög heimamanna og fleira til skemmtunar og fróðleiks. Sígilt heimildarit, nauðsynlegt öllum áhugamönnum um byggðasögu og ættfræði. (Heimild: Bókatíðindi)
Verkið Holtamannabók I Holtahreppur eru 20 kaflar, þeir eru:
- Kort af Holtahreppi
- Orðskýringar
- Formáli
- Inngangur
- Ljóð og nótur
- Bæir og búaendur í Holtahreppi
- Grasbýli og einstök hús
- Byggðahverfi
- Um einstakar ættfærslur
- Bæjanöfn í Holtahreppi
- Bókakaup Holtamanna
- Heimavarnalið Levetzovs
- Hreppanefndir
- Fjallferð og réttir
- Kambsrétt
- Rithandasýnishorn úr Holtamannahreppi
- Mannfjöldi í Holtahreppi
- Svipmyndir
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.