Hættuleg sendiför
El Gringo – öðru nafni Morgan Kane – kom ríðandi nður úr hrjóstrugu hálendi Sonora, horaður, kinnfiskasoginn og haturfullur. Að baki honum lá Coyota særður í í blóðlitum skafli, og konan sem forsmáð hafði ást Kanes og brugðist trausti hans kraup nú í þeim sama skafli og grét yfir blóðugum manninum. Þegar Don Alfonso Reynes bað Kane að fara fyrir sig í sendiferð, dró mexíkanski sveitahöfðinginn enga dul á það, að sendiförin væri hættuleg, en Kane átti að sækja son gamla höfðingjans til Ciuidad Juarez og fylgja honum til Chiricahua.
Voldugir pólitískir fjandmenn Don Alfonsos mundu senda leigumorðingja sína af stað til að drepa búgarðserfingjann … Og El Grigo hlaut að mæta þeim einn síns liðs, með skammbyssuna að vopni. Morgan Kane gaf dauðan og djöfulinn í allar hættur … vegna þess að líf hans hafði engann tilgang lengur … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.