Gerpla – Halldór Laxness 1. útg.

Gerpla er eitt af stórvirkjum Halldórs Laxness. Sagan gerist á 11. öld þegar tveir vestfirskir garpar sverjast í fóstbræðralag að fornum sið. Þorgeir Hávarsson er vígreifur kappi sem vill heldur herja en hokra. Þormóður Bessason er hæglátt skáld sem ann konum og hetjum meir; meðan hann situr heima í friði fer Þorgeir í víking og finnur sér kóng að berjast fyrir en lætur að lokum líf sitt. Þá er skáldið skyldugt að halda af stað og hefna fóstbróður síns og yrkja kóngi hans dýr kvæði.

Gerplu má kalla rangsnúna hetjuharmsögu. Hún er í sögualdarstíl en hetjurnar fallnar af stalli. Sagan er margræð og beitt háðsádeila á stríðsrekstur og hetjudýrkun að fornu og nýju – en ekki síður á þá sem fylgja í blindni leiðtoga eða hugsjón og fórna allri mennsku fyrir ímyndaða dýrð.

Þegar Gerpla kom út árið 1952 olli hún miklu fjaðrafoki þar sem með henni réðst Halldór Laxness í það stórvirki að skrifa „Íslendingasögu“.

Ástand: gott

Gerpla - Halldór Laxness - 1 útgáfa

kr.4.500

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8502671 Flokkar: , Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,750 kg
Ummál 15 × 4 × 21 cm
Blaðsíður:

493

ISBN

Ekkert

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1952 (1. útgáfa)

Höfundur:

Halldór Laxness

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Gerpla – Halldór Laxness útgáfa 1952 – Uppseld”