Fullkomlega ófullkomin

Erna Kristín er fædd 1991, hún er móðir og eiginkoma ásamt því að stunda nám við Háskóla Ísladns en hún stefnir að því að ljúka þaðan embættisprófi í guðfræði vorið 2019. Erna hefur lengi unnið í kringum samfélagsmiðla, en síðustu ár hefur hún byggt upp sinn eigin miðil sem hún kallar Ernuland.

Erna hefur mikinn áhuga á að vinna með fólki og hefur tileinkað sér það að nota samfélagsmiðla til góðra verka. Jákvæð líkamsímynd er eitt af þeim mikilvægu verkefnum sem Erna hefur notað samfélagsmiðilinn sinn í, til þess að hjálpa bæði sér og öðrum konum að komast skrefinu nær því að ná sátt, bera virðingu fyrir og elska líkama sinn, eins og hann er núna og í hvaða formi sem hann kemur til með að birtast gegnum lífið.

Hvað er hægt að gera til að hjálpa ungum stelpum og konum að taka skrefið? Hvernig getum við brotið niður þessa stöðluðu samfélagsímynd sem lögð eru á konur og útlit þeirra? (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Fullkomlega ófullkomin er skipt niður í 10 kafla, þeir eru:

  • Fullkomlega ófullkomin
  • Tímalína, líkami kvenna sem sölu- og tískufyrirbæri
  • Reynslusögur – Erna Kristín
  • Reynslusögur – Fanney Dóra
  • Reynslusögur – Alexandra
  • Reynslusögur – Inga Kristjáns
  • Spegilmyndin
  • Hvað felst í því að elska sjálfan sig?
  • 20 gagnlegir punktar að jákvæðri líkamsímynd
  • Markmið

Ástand: gott, ekkert krot né nafnamerking

Fullkoomlega ófulkonin Erna Kristín

kr.1.100

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,520 kg
Ummál 22 × 2 × 22 cm
Blaðsíður:

103 +myndir

ISBN

9789935244406

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Ernuland

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2018

Hönnun:

Embla Rún Gunnarsdóttir (umbrot)

Ljósmyndir:

Guðrún Andrea Sólveigardóttir (ljósm. reynslusögur), Víðir Björnsson

Höfundur:

Erna Kristín Stefánsdóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fullkomlega ófullkomin – Uppseld”