Fótspor á himnum

„Á Spáni er maður sem heitir Franco. Ég hef hugsað mér að skjóta hann. Síðan kem ég aftur og elska þig jafn heitt og áður.“ Þannig kveður Olli Spánarfari Unni fögru áður en hann heldur af stað í borgarastyrjöldina á Spáni ásamt vini sínum, risanum Ragnari.

Fjölskylda Ragnars er í forgrunni þessar mögnuðu sögu um líf og örlög Íslendinga sem vaxa úr grasi á fyrstu áratugum aldarinnar. Hér er lýst fjölda minnistæðra og litríkra persóna; Haraldi tómthúsmanni, afa Ragnars, foreldrum hans Óla ragara og Guðnýju sem gerist dyggur liðsmaður Hvítasunnusafnaðarins, stórum systkinahópi og lagsbræðrum Ragnars í kommúnisma og Grími boxara.

Þetta er saga stoltra einstaklinga sem verður um leið þjóðarsaga. Einar ár hefur sjaldgæf tök á efni sínu, byggir á heimildum og hugarflugi, sameinar raunsæja þjóðlífslýsingu og ljóðrænar stemningar og kryddar með snjöllum tilsvörum og góðum húmor.

Sagan Fótspor á himnum hlaut frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda þegar hún kom út árið 1997 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þetta er fyrsta skáldsaga Einars Más eftir Engla alheimsins sem færði höfundi sínum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og hefur síðan farið sigurför um heiminn. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott

Fótspor á himnum - Einar Már Guðmundsson

kr.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,550 kg
Ummál 15 × 2 × 22 cm
Blaðsíður:

216

ISBN

9979316349

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Mál og menning

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2000 / 1997 (1.útgáfa)

Hönnun:

Margrét Laxnes (kápa)

Höfundur:

Einar Már Guðmundsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fótspor á himnum – Einar Már Guðmundsson”