Fleiri athuganir Berts

Hjarta mitt hoppar og hamast og er vafið inn í fíkjublöð. Ég er ástfanginn“ Svona háfleygur verður Bert þegar hann trúir dagbókinni sinni fyrir hugsunum sínum um Pálínu. En Pálína er ekki auðveld bráð. Það fær Bert að reyna í dansskólanum þegar hann ætlar að grípa hana en missir hana í gólfið eins og kartöflupoka.
Bert greinir samviskusamlega frá því sem gerist í skólanum síðustu dagana fyrir sumarleyfið atburðum í skólabúðunumm, ferð fjölskyldunnar til New York og Jamaica og mörgu fleiru. En á einn eða annan hátt snýst hugar hans alltaf um stelpur. Þann 20 ágúst skrifar hann í dagbókina sína: „Ég er ábyggilega eini 13 ára strákurinn í heiminum sem hefur svona saurugar hugsanir..“ (Heimild: bakhlið bókarinnar)

Ástand: innsíður góðar.

Fleiri athuganir Berts - Sören Olsson og Anders Jacobsson

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,620 kg
Ummál 16 × 2,5 × 22 cm
Blaðsíður:

251 +teikningar

ISBN

9979571543

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Skjaldborg

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1993

Teikningar

Sonja Härdin

Íslensk þýðing

Jón Daníelsson

Höfundur:

Sören Olsson, Andres Jacobsson