Eyjabrúðkaupið
Á litlu skosku eyjunni Mure ætla Flora MacKenzie og unnusti hennar Joel loksins að ganga í það heilaga. Brúðkaupsundirbúningurinn gengur þó ekki sem skyldi vegna þess að skötuhjúin eru ekki sammála um hvernig þau vilja hafa stóra daginn; Joel langar í látlaust brúðkaup en Floru dreymir um stóra veislu með vinum og vandamönnum.
Málin flækjast enn frekar þegar hin íðilfagra samfélagsmiðlastjarna Olivia mætir með áform um að halda brúðkaup aldarinnar á Klettinum — sama dag og Flora og Joel ætla að gifta sig. Í öllum hamaganginum stelast skólastýran Lorna og læknirinn Saif til að eiga leynilega ástarfundi. Þau þora ekki að gera nein áform um framtíðina þar sem ríkisborgararéttur hans sjálfs og drengjanna er í húfi og að auki stendur Saif frammi fyrir erfiðu vali eftir óvæntar fréttir frá Sýrlandi. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Sjálfstætt framhald af Mure-bókunum.
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.