Einvígi í San Antonio
Wes Hardin var laus úr fangelsinu!
Einn illræmdasti morðinginn í blóði drifinni sögu Texas hafði afplánað 16 ára fangavist, og var nú frjáls maður á ný. Það voru fjörtíu skorur í skeftunum á þeim tveimur Colt-skammbyssum, sem hann bar, og flest fórnarlömbn hans höfðu fengið kúlu í gegnum höfuðið …
Skammbyssumenn á borð við Morgan Kane skildu manna best hvað þetta táknaði. Algengast var að miðað væri á brjóst andstæðings, breiðasta hluta líkamans. Hardin var svo öruggur um hæfni sína, og sjálfstrausti hans svo takmarkalaust, að hann veigraði sér aldrei við að miða á höfuðið. Og sannleikurinn var sá, að tækist Hardin að verða fyrri til að hleypa af … og sjaldan geigaði skot hans … fékk andstæðingurinn aldrei tækifæri til að svara fyrir sig.
Margir töldu að Villta Vestrið myndi aldrei hafa orðið vitni að annarri eins hólmgöngu … John Wesley Hardin gegn Morgan Kane … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.