Blekkingaleikur – Dan Brown
Bandaríska geimferðastofnunin NASA þykist hafa himin höndum tekið þegar gervihnöttur á hennar vegum gerir merka uppgötvun yfir heimskautinu. Stofnunin á undir högg að sækja og uppgötvunin er ekki aðeins líkleg til að greiða fyrir frekari geimrannsóknum heldur hafa einnig afdrifarík áhrif á bandarísku forsetakosningarnar. Ung kona sem starfar hjá stjórnvöldum í Washington er send út á heimskautaklakann til að kanna málið en kemst fljótlega að því að hún er stödd mitt í háskalegum blekkingaleik. Dan Brown er um þessar mundir vinsælasti höfundur heims. Enginn aðdáandi höfundarins verður svikinn af þessari bók hans. (Heimild: Bókatíðindi).
Ástand: gott