Bangsímon býður til veislu

Bangsímon og Grislingur hitta asnan Eyrnaslapi og kemur í ljós að eini afmælisdagurinn hjá Eyrnaslapa er þegar hann fæddist. Þá fékk Bangsímon hugmynd hvers vegna ekki að halda honum veislu …

Disney bók en byggð á mynd eftir Walt Diseny og byggðu þeir mynd sína á bók eftir enska rithöfundinn A. A Milne (f. 18. janúar 1882 – d. 31. janúar 1956). Fyrsta bókin kom út þann 14. október árið 1926 og heitir „Winnie the Pooh“, á frummálinu. Bangsinn ljúfi í sögum Milne dró nafn sitt af leikfangabangsa Christopher Robins, sonar Milne. Nokkrar aðrar persónur í sögum Milne voru skírðar eftir tuskudýrum Robins, svo sem Eyrnaslapi (Eeyore) og Grislingur (Piglet).
Bangsi Robins hét í fyrstu Edward Bear en Robin gaf honum síðan nafnið Winnie eftir birni í dýragarðinum í London sem sonur hans hafði dálæti á. Sá björn var í dýragarðinum frá árinu 1919 til 1934 og kom upphaflega frá Winnipeg í Kanada og dró nafn sitt af borginni, stytt sem Winnie. Nafnið Pooh var upprunalega heiti á svani sem oft sást á landareign Milne. (Heimild: Vísindavefur.is / JGÞ; Wikipedia )

Ástand: gott bæði kápan og innsíðurnar góðar.

Bangsímon býður til veislu - Disneybók

kr.400

1 á lager

Vörunúmer: 8503545 Flokkur: Merkimiðar: , , , , Brand:

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,196 kg
Ummál 16,5 × 0,7 × 24 cm
Blaðsíður:

44 +myndir

ISBN

9979201940

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Vaka Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1994 (1. útgáfa)

Íslensk þýðing

Sigrún Árnadóttir

Höfundur:

Walt Disney / A. A. Mine (byggt á sögu hans)