Abraham Lincoln
Abraham Lincoln sextándi forseti Bandaríkjanna í Norður-Ameríku var fæddur árið 1809 og andaðist árið 1865, er hann féll fyrir morðingja hendi, staddur í leikhúsi í Washington. Lincoln var af fátæku fólki kominn og ólst upp við harðrétti. Hannd var fæddur í Kentucky, en fluttist þaðan barn að aldri með foreldrum sínum fyrst til Indiana og síðan til Illinois, þar sem hann átti lengst heima í borginni Springfield. Á unga aldri missti hann móður sína, en eignaðist nokkru síðar góða stjúpu, sem gekk honum í móður stað. Lincoln var að mestöllu leyti sjálfmenntaður maður, las lög og stundaði lögfræðistörf í Springfield. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Abraham Lincoln, eru 16 kafla, þeir eru:
- Kentucky kvatt
- Opni skálinn
- Nú skil ég ekki við þig framar
- Ný mamma
- Í skólanum
- Hryllileg sjón
- Vel af sér vikið
- Ævintýri í New Salem
- Nóg að gera
- Góðir dagar
- Stjórnmálabarátta
- Hvíta húsið bíður
- Ófriður er óhjákvæmilegur
- Forsetinn talar
- Gettysborgarávarpið
- Dánardægur
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.