Hefndarenglarnir
Í eyðimerkurhéruðunum í austurhluta Utah fór það eins og skógareldur um allt: HEFNARENGLARNIR ríða í nótt!
Fólk á afskekktum býlum skimaði hræðslulega út á næturnar til að vita, hvort það sæi reykský, þegar HEFNDARENGLARNIR voru á ferðinni. Þeir voru böðlar mormónanna, sem allir óttuðust og þeir hefndu alls þess óréttar sem framinn var gegn trúbræðrum þeirra. Nú riðu þeir of oft og drápu of marga. Það voru ekki aðeins vantrúarmenn, sem óttuðust HEFNDARENGLANA heldur mormónarnir sjálfir.
Það varð að binda endi á starfsemi þeirra, ef Utah átti að komast í sambandsríkin. Það varð að láta hart mæta hörðu og þar var komið verkefni handa Morgan Kane. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.