Downs-heilkenni
Í bókinni lýsa höfundar ítarlega öllum þáttum sem varða einstaklinga með Downs-heilkenni, hvernig það sé að vera foreldri barns með Downs-heilkenni, sögulega þætti, litningafrávik, greiningu á fósturstigi, greiningarþróun, læknisfræðilegum vandamálum og meðferð þeirra, hvernig standa beri að þjálfun í hreyfifærni og boðskiptaum og ennfremur um félagsleg réttindi barnsins, hins fullorðna og fjölskyldunnar.
Þetta er fyrsta og eina bókin sem gefin hefur verið út um Downs-heilkenni á íslensku. Um er að ræða einstaklega áhugaverða handbók fyrir foreldra jafnt sem fagfólk.
Bókin bætir úr brýnni þörf á íslensku fræðsluefni og veitir foreldrum og fagaðilum stuðning til að vinna markvissar að eflingu á þroska einstaklinga með Downs-heilkenni.
Bókin er einkum ætluð foreldrum, aðstandendum, fagaðilum og starfsfólki sem sinnir einstaklingum með Downs-heilkenni. Hún nýtist einnig læknum og fólki sem starfar við umönnun fatlaðra.
Ástand: ný.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.