Bangsímon leiðangur á norðurpólinn
Það eru að koma jól. Með aðstoð Uglu eru Bangsímon og vinir hans búnir að skrifa jólasveininum bréf. Og til þess að vera alveg viss um að sveinki fái bréfið tímanlega leggja þeir, með Jakob í broddi fylkingar, upp í leiðangur á Norðurpólinn.
Walt Diseny byggð mynd sína eftir enska rithöfundinn A. A Milne (f. 18. janúar 1882 – d. 31. janúar 1956). Fyrsta bókin kom út þann 14. október árið 1926 og heitir „Winnie the Pooh“, á frummálinu. Bangsinn ljúfi í sögum Milne dró nafn sitt af leikfangabangsa Christopher Robins, sonar Milne. Nokkrar aðrar persónur í sögum Milne voru skírðar eftir tuskudýrum Robins, svo sem Eyrnaslapi (Eeyore) og Grislingur (Piglet).
Bangsi Robins hét í fyrstu Edward Bear en Robin gaf honum síðan nafnið Winnie eftir birni í dýragarðinum í London. Sá björn var í dýragarðinum frá árinu 1919 til 1934 og kom upphaflega frá Winnipeg í Kanada og dró nafn sitt af borginni, stytt sem Winnie. Nafnið Pooh var upprunalega heiti á svani sem oft sást á landareign Milne. (Heimild: Vísindavefur.is / JGÞ; Wikipedia )
Ástand: gott







