Barn náttúrunnar – Halldór Laxness
Afmælisútgáfa 23. apríl 1977.
Þessi afmælisútgáfa kemur aðeins út í þúsund eintökum og verður ekki endurprentuð.
Barn náttúrnar var fyrsta bók Halldórs Laxness. Hann skrifaði hana sautján ára og skrifaði hana með menntaskólanámi sínu, en bókin kom fyrst út 1919. Sagan er stór í sniðum og merkileg heimild um veganesti hins unga snillings sem var um það bil að leggja af stað út í heim.
Löngu síðar á ævinni, eftir að hafa athugað söguna að nýju, komst höfundur svo að orði um hana: „þá uppgötva ég að þetta muni vera bezta bók mín og liggja til þess þær orsakir að hún geymir óm bernskunnar. Þetta er kveðja mín til bernskudaganna.“
Helgafell útgáfa sambdi við Harald Guðbergsson, að hannn gerði myndir í sérstaka útgáfu af Barni náttúrunnar, sem hér kemur út í tilefni af sjötíu og fimm ára afmæli Halldórs Laxness. Eins og vænta mátti eru teikningar Haralds afburða vel gerðar, bæði sem bókalýsing og sjálfsstætt verk. Hver mynd vísar til staðar í textanum, en jafnframt eru myndirnar samfelld myndröð innbyrðis. (Heimild: Baksíða bókarinnar)
Ástand: gott / nýtt
Aðeins voru prentuð 1000 eintök








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.