Landmannabók: Landsveit
Í Landmannabók er rakin saga jarða í Landmannahreppi, Landsveit, í Rangárvallasýslu og fólksins sem þær hefur setið frá því sögur hófust og til þessa dags. Saga eignarhalds á jörðunum er sögð, getið allra bænda og húsmæðra sem heimildir hafa fundist um, ættir þeirra og æviferill rakinn og sagt frá börnum þeirra. Lýsingar eru á mörgu fólki og myndir birtar af hundruðum manna. Meðal annars efnis í bókinni er fróðleg ritgerð eftir sr. Ófeig Vigfússon á Fellsmúla: Ágrip af sögu Landsveitar. Einnig gamlar og nýjar myndir af bæjum, myndir af nokkrum atburðum í mannlífinu og fleira efni til skemmtunar og fróðleiks. Landmannabók er nauðsynlegt heimildarit öllum áhugamönnum um sögu byggða, persónusögu og ættfræði. (Heimild: Bókatíðindi)
Verkið Landmannabók: Landsveit eru 12 kaflar, þeir eru:
- Kort af Landsveit
- Orðskýringar
- Formáli
- Inngangur
- Ljóð
- Ágrip af sögu Landsveitar
- Bæir og búendur í Landmannahreppi
- Um einstakar ættfærslur
- Bæjarnöfn í Landsveit
- Ljóð úr Landsveit
- Hreppsnefndir í Landmannahreppi
- Rithandarsýnishorn úr Landsveit
- Heimavarnarlið Levetzovs
- Mannfjöldi í Landmannahreppi
- Bókakaup Landmanna
- Hundruð, álnir og fiskar
- Sveimyndur úr Landsveit
- Viðauki
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
Ástand: bæði innsíður, kjölur og harðakápa góð.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.