Litla bókabúðin við vatnið
Zoe býr við þröngan kost í London með ljúfa drengnum sínum Hari sem af einhverjum ástæðum talar ekki. Þegar leigusalinn tilkynnir Zoe að hann ætli að hækka leiguna veit hún ekki hvað hún á til bragðs að taka. Faðir Hari tekur litla sem enga ábyrgð á umönnun eða uppeldi sonarins og Zoe finnst hún vera í vonlausri stöðu.
Nina rekur bókabúð í sendibíl nærri Loch Ness í Skotlandi og bráðvantar einhvern til að leysa sig af, því hún á von á sínu fyrsta barni með hægláta bóndanum Lennox.
Þegar Zoe býðst að sjá um bókabílinn fyrir Ninu, og gæta barna fyrir herragarðseigandann og einstæða föðurinn Ramsay Urquart í skiptum fyrir húsnæði, grípur hún tækifærið í von um betra líf. Sú ákvörðun á eftir að reynast afdrifarík fyrir fleiri en þau mæðginin. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Sjálfstætt framhald Litlu bókabúðarinnar í hálöndunum.
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.