Landkönnun og landnám íslendinga í vesturheimi
Þetta frábæra verk Landkönnun og landnám íslendinga í vesturheimi kom upphaflega út í þremur hlutum. En hér hafa öll bindin verið bundin inn saman.
- hlutinn er 768 blaðsíður og kom út árið 1941
- hlutinn er 256 blaðsíður og kom út árið 1943
- hlutinn er 456 blaðsíður og kom út árið 1944
Verkið er glæsilegt í alla staði með t.d. myndum, kortum og töflum.
Dr. Jón Dúason heitir fullu nafni Dr Jón Norðmann Dúason (30. júlí 1888 – 5. maí 1967) var íslenskur hagfræðingur og fræðimaður sem hafði einstaka yfirsýn yfir tengsl Íslendinga við Grænland og hélt fram ríkri réttarstöðu Íslendinga til ítaka þar í landi.
Dr. Jón fæddist í Langhúsum í Haganeshreppi í Skagafirði. Hann lauk stúdentsprófi árið 1913 og stundaði nám í samvinnufélagsfræðum (þjóðfélagsfræði) við Hafnarháskóla í Danmörku og Skotlandi. Eftir það stundaði hann hagfræði og varð cand. polyt. í Kaupmannahöfn árið 1919. Hann stundaði því næst nám í bankamálum í Bretlandi og Norðurlöndum og var nokkur ár starfsmaður ríkis og borgar í Höfn. Árið 1928 varði Dr. Jón ritgerð fyrir doktorsgráðu í lögum við háskólann í Osló. Ritgerðin nefndist: „Grönlands rettsstilling i middelalderen“. Tveimur árum áður, það er 1926, hafði Jón gerst stórkaupmaður, en innan tíðar gaf hann þó kaupmennskuna upp á bátinn og sneri sér að því verkefni sem áttu hug hans – að rannsaka og safna heimildum til sögu Grænlands og réttarstöðu. Jón er einnig hvað þekktstur fyrir öll þau mörgu rit sem hann skrifaði um réttartilkall Íslendinga til Grænlands. (Heimild: Wikipedia)
Ástand: gott
ATH! Við getum sýnt þetta glæsilega verk (á höfuðborgarsvæðinu) ef óskað er eftir því.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.