Himnaför
Himnaför er grípandi saga sem á sér óvenjulegan bakgrunn. Þegar Xinran, sem vakti verðskuldaða athygli þegar hún skrifaði Dætur Kína, var lítil stúlka barst út sá orðrómur að kínverskum hermanni hefði verið kastað fyrir hrægamma í Tíbet. Þrjátíu árum síðar hitti hún konu sem sagði henni ótrúlega sögu af lífi sínu. Shu Wen hafði lifað af reynslu sem tekur ímyndunarafli flestra langt fram. Í angistarfullri leit að eiginmanni sínum flakkaði hún í meira en þrjátíu ár um auðnir Tíbets þar til hún um síðir komst að sannleikanum um afdrif hans. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Himnaför er ekki með efnisyfirlit, en við skoðun er hún skipt í 10 kafla, þeir eru:
- Shu Wen
- Ég get ekki skilið hann aleinan eftir í Tíbet
- Zhuoma
- Tíbesk fjölskylda
- Umkomulaus í Qinghai
- Hin þrettán helgu fjöll
- Gamli einsetumunkurinn Qiangba
- Kærleiksför til himna
- Ferðin heim
- Bréf til Shu Wen
Ástand: gott