Ekið um óbyggðir
82 hálendisleiðir, sumar- og vetrarleiðir, leiðalýsingar, hálendiskort, GPS-punktar, kröfur til farartækja, vegalengdir og aksturstími, gistimöguleikar, skálaskrá, ár og vöð
Í þessari bók eru greinargóðar og ríkulega myndskreyttar lýsingar á 82 ökuleiðum um hálendið þar sem m.a. er að finna töflur með GPS-punktum og ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar. Einnig er í bókinni myndskreytt skálaskrá með upplýsingum um 115 skála á hálendinu og sérstakur kafli um ár þar sem gerð er grein fyrir tæplega eitt hundrað vöðum í máli og myndum. Inngangskafli er að bókinni með almennum upplýsingum um akstur á hálendinu og henni fylgir nýtt hálendiskort. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Ekið um óbyggðir eru 7 kaflar +viðauki, þeir eru:
- Inngangur (7 kaflar)
- Leiðalýsingar
- Norðan jökla (21 kafli)
- sunnan jökla – vestan Þjósár (22 kafli)
- Sunnan jökla – Austan (20 kaflar)
- Fjallabaki (13 kaflar)
- Mýrdalsjökull og nágrenni (8 kaflar)
- Viðauki
- Vaðatal
- Skálaskrá
Ástand: gott, kápan þreytt en innsíður góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.