Rebbi fjallarefur
Þetta er sagan um Rebba fjallaref
Það er björt og hlý sumarnótt á fjöllum. Það er komið fram yfir óttu og sólin er að koma á loft enda löngu liðinar sólstöður. Það liggur skytta á tófugreni við Einbúaklettinn. Aðstoðarmaður skyttunnar vakir á verði við grenisopið en skyttan sjálf er fjær.
Það er læða í greninu með fjóra væna yrðlinga. Refurinn er á veiðum. Hann er næntanlegur heim þá og þegar. Þá eru yrðlingarnir vanir að taka á móti honum með miklu fjöri og slást ákaft um fenginn sem oftast er fugl. Þessi refur er orðinn gamall og lífsreyndur. Undanfarin tvö ár hefur hann leikið á skytturnar og sloppið en fjölskylduna hefir hann misst … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott