Við enda hringsins
Við fornleifauppgröft í gömlu miðaldaklaustri í Noregi kemur hópur alþjóðlegra vísindamanna niður á lítið skrín úr skíragulli. Tvö þúsund ára gamalt. Skrínið er harðlæst en fornleifafræðingarnir vita að það geymir leyndardóma sem kunna að breyta gangi sögunnar. Skríninu er umsvifalaust stolið því að voldug öfl svífast einskis til að varðveita leyndardómana sem það geymir og við tekur eltingarleikur sem berst víða um lönd. Við enda hringsins er ögrandi, óvenjuleg og hörkuspennandi saga, en Da Vinci lykillinn sem kom út tveimur árum síðar þykir um margt minna á hana. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.