Tyrknesk refskák
Varja er ung stúlka sem heimsækir unnusta sinn á vígvöllinn í stríði Rússa og Tyrkja 1877. Þar kynnist hún ungum og snjöllum lögreglumanni, Fandorin að nafni. Varja, sem er áræðin kvenréttindakona, flækist með Fandorin inn í undarlegt njósnamál þar sem hún kynnist flóknu tafli stórveldanna á Balkanskaga. Um leið verður sérhver maður sem verður á vegi Vörju ástfanginn af henni. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Tyrknesk refskák er fjórða bókin í hinum vinsæla spennusagnaflokki um Fandorin ríkisráð eftir Boris Akúnin. Áður hafa komið út Ríkisráðið, Krýningarhátiðin og Vetrardrottningin.
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.