Tölvuorðasafn

Íslensk-ensk / Ensk-íslensk

Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands tók saman

Tölvuorðasafn er afrakstur af margra ára starfi Orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands og samvinnu hennar við fjölmarga sérfræðinga í fremstu röð. Það kom fyrst úr árið 1983 en hefur nú verið stóraukið og endurbætt.

Í þessari nýju útgáfu eru bæði íslensk og ensk heiti á tæplega 2600 hugtökum, sem lúta að tölvutækni og tölvunotkun, og eru langflest sótt í alþjóðlega staðla. Hvert hugtak er skilgreint eða útskýrt nákvæmlega á ísensku og er það nýlunda

Tölvuorðasafn er bæði íslenskt-enskt og ensk-íslenskt. Í ensk-íslenska hlutanum er aðeins ein íslensk þýðing við hvert orð og er hún hugsuð sem tilvísun til íslensk-enska hlutans. Þar er að finna alla þá vitneskju sem bókin veitir um hvert hugtak.

Tölvuorðasafn er höfuðrit á sínu sviði og ómissandi þeim sem tala og skrifa á íslensku um tölvur og notkun þeirra. Bókin hentar öllum, bæði sérfræðingum og byrjendum. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Tölvuorðasafn, Íslensk-ensk, ensk-íslensk hefur tvö hluta, Þeir eru:

  • Íslensk-ensk orðabók
  • Ensk-íslensk orðabók

Ástand: gott, búið að nafnamerkja snyrtiega á saurblað með upphafsstöfum

Tölvuorðasafn - Rit íslenskrar málnefndar

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,520 kg
Ummál 17 × 2 × 24 cm
Blaðsíður:

207

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Íslensk málnefnd

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1986 (aukin og endurbætt) / 1983 (1. útgáfa)

Ritstjóri

Sigrún Helgadóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Tölvuorðasafn útg. 1986 – Ekki til eins og er”