Táknið
Undarlegur ljóshnöttur birtist yfir Suðurskautslandinu í beinni útsendingu hjá sjónvarpskonunni Gracie Logan. Matt Sherwood, Bostonbúi með vafasama fortíð, kemst að því að ekki var allt með felldu þegar bróðir hans fórst í slysi tveimur árum áður – og skyndilega er hann kominn í ójafnan leik við harðsvíraða morðingja sem svífast einskis til að hindra hann í að komast að sannleikanum. Ljóstáknið birtist víðar og virðist tengjast gömlum presti í koptísku klaustri í Egyptalandi. Milljónir manna bíða í ofvæni eftir að merking þess skýrist og Gracie og Matt eiga í æsilegu kapphlaupi við tímann og ofurefli liðs. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Raymond Khoury hefur skrifað geysivinsælar bækur sem selst hafa í metupplögum, svo sem Síðasta musterisriddarann og Griðastað.
Ástand: gott laus við allt krot og nafnamerkingu








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.