Skellibjalla

Disneybók sem byggir á mynd

Við fyrsta hlátur ungbarns kviknar líf og hefur sig til flugs. Hláturinn stefnir út um gluggann og að ströndum Hvergilands, töfrastaðnum þar sem ljósálfarnir búa. Svona varð Skellibjalla til. En Bjalla er ekki sátt við hæfileika sína og fer fljótlega að rækta með sér aðra hæfileika – en  þá verður voðinn vís!  (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bók þessi byggir á mynd sem Walt Disney gerði og var frumsýnd 5. febrúar árið 1953 og heitir Peter Pan en Skellibjallaer hluti af þeirri mynd. Walt Disney gerði sérstaka mynd bara með Skellibjöllu (Tinkerbell) árið 2008. En Skellibjalla koma fyrst fram í mynd 1924 hjá Paramount Pictures og sú kvennpersóna sem lék hana var Virginia Brown Faire, heitir í raun Virginia Cecelia Labuna (26. júní 1904 – 30 júní 1980). Myndin byggir á sögu eftir Skoska skáld- og leikritahöfundinn Sir James Matthew Barrie (J.M. Barrie) (9. maí 1860 – 19. júní 1937). Fyrst útgáfa bókarinnar um Pétur Pan kom árið 1902 og fjallaði um strák sem er í Kensinton garðinum í Bretlandi en árið 1906 kom bók sem og heitir Peter Pan in Kensington Gardens

Ástand: gott.

Skellibjalla - JM Barrie - Walt Disney - Disnbeybók

kr.400

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,204 kg
Ummál 16,5 × 1 × 24 cm
Blaðsíður:

42 +myndir

ISBN

9789979658696

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Heitir á frummáli

Tinkerbell

Útgefandi:

Edda útgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2009

Íslensk þýðing

Elínborg Stefánsdóttir

Höfundur:

Walt Disney / Sir James Matthew Barrie (byggð á sögu)