Skammbyssa á lausu
Rauðglóandi hatur hafði ríkt í tuttugu ár milli stórbændannna tveggja Marquetta og Kahns … mótað skaplyndi þeirra og tært alla mannlega eðlisþætti, svo að nú voru þeir orðnir svarnir fjandmenn, sem einskis svifust við að koma fram hefndum. Það var aðeins tímaspursmál, hvenær að því kæmi að blóðugt stríð blossaði upp milli kúabændanna.
Þá var það sem ungur „Pístóleró” kom ríðandi dag nokkurn heim á búgarð Kahns … einn af þessum skotglöðu byssumönnum, sem seldu djöfullega færni sína með skammbyssuna, þeim sem hæst bauð. Hann hét Morgan Kane.
Kahn stórbóndi var sá sem best gat borgað, og hann átti dóttur, sem kunni að trylla karlmenn með fögrum kroppi sínum. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.