Sálir vindsins
Aldraður vistmaður á einkareknu elliheimili í Linköping finnst hengdur í snúrunni að neyðarhnappnum hans. Í fyrstu virðist um sjálfsvíg að ræða, en við krufningu kemur annað í ljós. Var verið að þagga niður í gamla manninum? Hver hafði hag af dauða hans? Voru fleiri vistmenn í hættu?
Lögregluforinginn Malin Fors stýrir rannsókn málsins. En henni reynist erfitt að fá botn í misvísandi upplýsingar og sönnunargögn. Úr verður atburðarás sem er í senn magnþrungin og æsispennandi. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.