Pocahontas og arnarunginn
Þvottabjörninn Míkó og fuglinn Flögri reyna að hjálpa ófleygum arnarunga sem hefur dottið úr hreiðrinu sínu. Þeir vinirnir gera hvað þeir geta til að halda unganum rólegum og koma honum heim – en ekkert gengur. kannski getur Pocahontas hjálpað þeim? (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Byggt á Disney kvikmyndinni Pocahontas (1995). Myndin er byggð á Pocahontas sem var fædd 1596 og lést í mars 1617 . Pocahontas, fædd undir nafninu Matoaka og síðar þekkt undir nöfnunum Amonute og Rebecca Rolfe, var amerísk frumbyggjakona sem varð fræg fyrir samskipti sín við evrópska landnema í bresku nýlendunni Jamestown í Virginíu og fyrir stuðla að friði milli þeirra og frumbyggjanna. Árið 1613 handsömuðu Englendingar Pocahontas og héldu henni gegn lausnargjaldi. Á meðan hún dvaldi með Englendingunum snerist Pocahontas til kristni og tók upp nafnið Rebecca. Þegar henni bauðst að snúa heim til þjóðar sinnar ákvað hún að vera heldur áfram með Englendingunum. Í apríl árið 1614, þegar hún var 17 ára, giftist Pocahontas tóbaksræktarmanninum John Rolfe. Hjónunum fæddist sonurinn Thomas Rolfe í janúar árið 1615. Árið 1907 kom út 5 centa frímerki með mynda af Pocahontas og varð hún fyrsti einstaklingur af frumbyggjum BNA til að fá þann heiður að vera á frímerki. (Heimild: Wikipedia )
Ástand: gott