Náttblinda
Við opnun listasýningar í bænum Biddista á norðurhluta Hjaltlands veldur aðkomumaður uppnámi þegar hann brestur í grát og segist ekki vita hver hann er eða hvaðan hann komi. Daginn eftir finnst maðurinn dáinn, hangandi í snöru í bátaskýli með trúðsgrímu á andlitnu.
Lögregluforinginn Jimmy Perez er sannfærður um að maðurinn hafi verið myrtur og að morðið tengist einhverjum í Biddista. Hann styrkist í þeirri trú þegar annað morð er framið á sömu slóðum. En samband Jimmys við lögreglukonuna Fran Hunter ruglar hann í ríminu. Og þetta er viðsjárverður tími ársins – þegar næturnar eru bjartar og ekkert er alveg eins og það sýnist. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.