Morðingi án andlits

Kaldan janúarmorgun árið 1990 uppgötvar bóndi á Skáni í Svíþjóð sér til mikillar skelfingar að nágrannar hans hafa verið myrtir um nóttina. Og það með einstaklega hrottafengnum hætti. Hið eina sem lögreglan, undir stjórn Kurts Wallander, hefur til að byggja á rannsókn sína er hinsta orð konunnar: „útlenskir“. Þegar þetta spyrst út veldur það miklum úlfaþyt í samfélagi þar sem fjölmennir hópar flóttamanna búa við sífellt vaxandi fjandskap öfgafullra kynþáttahatara. Leitin að morðingjanum leiðir því lögreglumennina í gegnum ýmis skúmaskot sænska fyrirmyndarsamfélagsins og hatrömm átök eiga sér stað um viðkvæm mál. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu

Morðingi án andllits - Henning Mankell

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,320 kg
Ummál 12 × 2 × 20 cm
Blaðsíður:

336

ISBN

9979317159

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

Mördaren utan ansikte

Útgefandi:

Íslenski kiljuklúbburinn (Mál og menning)

Útgáfustaður:

Akranes

Útgáfuár:

1998

Hönnun:

Alda Lóa Leifsdóttir (kápuhönnun)

Íslensk þýðing

Vigfús Geirdal

Höfundur:

Henning Mankell

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Morðingi án andlits – Kilja – Uppseld”