Málað á tré og gler
Hefurðu áhuga á að mála en vantar munstur til að fara eftir? Þá er þetta bókin fyrir þig?
Hér er að finna munstur af öllum stærðum og gerðum – í fullri stærð! Grænmeti, fiskar, krabbar, hundar, randaflugur, sniglar, sólblóm, draumsóleyjar, sýrenur og ótal margt fleira. Málað er á skurðabretti, körfur, brauðkassa, speglaramma, klukkur, stólkolla og skilti. Og margt fleira. Sérstakur kafli er með leiðbeiningum og góðum ráðum.
Þessi aðgengilega bók opnar þér heillandi heim málaralistarinnar og gefur lífi þínu nýjan lit! (heimild: bakhliða bókarinnar)
Bókin Málað á tré og gler eru 27 kaflar, þeir eru:
- formáli
- ábendingar og góð ráð
- skref fyrir skref
- blómamynd
- sumarmatseðill
- karfa og vínkassi
- blá skreytt vínflaska
- rækjur á kertastjaka
- spegill og dótakassi
- litlar hjólbörur
- sólblómaspegill og kollur
- hundurinn fær egið skilti
- hesturinn fær eigið skilti
- hænsnabú
- kertastjaki
- saumakassi
- klukka í sumarskrúða
- skemill eða vagga
- sýrenubakki
- rósótt klukka
- draumsóleyjabakki
- brauðkassinn skreyttur
- físibelgur
- trébretti með liljum
- sniglakrukka
- tappatogarar
- munstur í fullri stærð
Ástand: bæði innsíður og kápa góð.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.