Litla bókabúðin við vatnið

Zoe býr við þröngan kost í London með ljúfa drengnum sínum Hari sem af einhverjum ástæðum talar ekki. Þegar leigusalinn tilkynnir Zoe að hann ætli að hækka leiguna veit hún ekki hvað hún á til bragðs að taka. Faðir Hari tekur litla sem enga ábyrgð á umönnun eða uppeldi sonarins og Zoe finnst hún vera í vonlausri stöðu.

Nina rekur bókabúð í sendibíl nærri Loch Ness í Skotlandi og bráðvantar einhvern til að leysa sig af, því hún á von á sínu fyrsta barni með hægláta bóndanum Lennox.

Þegar Zoe býðst að sjá um bókabílinn fyrir Ninu, og gæta barna fyrir herragarðseigandann og einstæða föðurinn Ramsay Urquart í skiptum fyrir húsnæði, grípur hún tækifærið í von um betra líf. Sú ákvörðun á eftir að reynast afdrifarík fyrir fleiri en þau mæðginin. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Sjálfstætt framhald Litlu bókabúðarinnar í hálöndunum.

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.

Litla bókabúðin við vatnið - Jenny Colgan - Angústúra 2021 - Kilja

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,450 kg
Ummál 12 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

502

ISBN

9789935523051

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

The bookshop on the shore

Útgefandi:

Angústúra (forlag)

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2021

Hönnun:

Arndís Lilja Guðmundsdóttir (hönnun og umbrot), Kate Forrester (teikningar)

Íslensk þýðing

Erna Erlingsdóttir

Höfundur:

Jenny Colgan

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Litla bókabúðin við vatnið – Jenny Colgan – Kilja”