Leiksvið dauðans
Morgan Kane var enn einu sinni í sviðsljósinu. Blóði drifinn ferill hans í Denver og átökin við gengi Hardins í San Antonio urðu að forsíðufréttum dagblaða um allt land … Shane yfirforingi greip til sama ráðs og oft áður, sendi Kane í orlof á meðan mestu lætin gengu yfir.
En dauðinn fylgdi í fótspor Morgan Kanes eins og jafnan fyrr. Í steikjandi sólarhitanum í Mexíkó gafst honum ærið tilefni til að æfa handtökin á nýju embættis-skammbyssunni, sem var Smith & Wesson New Model nr. 3 „Navy“
Spurning var, hvort hann þekkti þessa nýju skammbyssu nógu vel til að lifa af hið brjálæðislega einvígi á „Corrida de Muerto“ – Leiksviði dauðans …? (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.