Kóngsdóttirin og froskurinn
Oft er vitnað í froskinn sem breyttist í prins við koss litlu kóngsdótturinnar. Hér er þetta alkunna ævintýri endursagt og myndskreytt af Jonathan Langley sem er þekktur fyrir að slá á gamansama strengi. En Eyvör og Frikki lifa hamingjusöm til æviloka eftir kossinn góða, eignast börn og buru, grafa rætur og muru. (Heimild: Tímarit Máls og menningar 1993)
Ástand bókar: gott