Íslenzkar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur

I.–IV. bindi – Hið íslenska bókmenntafélag

Þetta glæsilega fjögurra binda verk er einstakt safn íslensks munnmenningararfs. Þar má finna fjölbreytt úrval þjóðlegra gátna, skemmtana, leikja, kvæða, þula og vikivaka sem söfnuð voru saman á 19. öld og gefin út af Hinu íslenska bókmenntafélagi á árunum 1887-1903 í Kaupmannahöfn. Þessi útgáfa er frá því 1964 og er ljósprentuð eftir útgáfanni í Kaupmannahöfn en setti í tvær bækur. Verkið var samið og safnað af Jóni Árnasyni og Ólafi Davíðssyni, sem báðir voru frumkvöðlar í söfnun og varðveislu þjóðlegra frásagna og munnlegra hefða.

Bókin er ómetanlegt heimildaverk um líf, húmor og menningu almúgans á Íslandi og er bæði fræðilega dýrmæt og skemmtileg lesning fyrir alla aldurshópa.

Um höfundana

Jón Árnason (1819–1888)
Var brautryðjandi í söfnun íslenskra þjóðsagna og menningararfs. Hann var fyrstur til að safna íslenskum þjóðsögum markvisst og gaf út hið víðfræga „Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri“. Hann starfaði sem landsbókavörður og átti stóran þátt í að varðveita og móta þjóðlega sjálfsmynd Íslendinga.

Ólafur Davíðsson (1862–1903)
Var þjóðfræðingur og kennari sem hélt áfram brautryðjandastarfi Jóns. Hann lagði stund á þjóðfræði í Kaupmannahöfn og safnaði gífurlegu magni þjóðlegra frásagna og siða. Samstarf hans við Jón Árnason við þetta verk tryggði útgáfu og varðveislu þessarar ómetanlegu arfleifðar.

➡️ Með eftirmála eftir Finn Jónsson
➡️ Fjögur bindi sem sett eru í tvær bækur, vel með farin og í upprunalegu bandi
➡️ Ómissandi verk fyrir þá sem unna þjóðlegum fróðleik

Bókin Íslenskar þjóðsögur eftir Ólafur Davíðsson og Jón Árnason flokkar eftir bindum:

Fyrsta bindi: 

  • Íslenzkar gátur, safnað hefur Jón Árnason (bls.:174)

Annað bindi:

  • Íslenskar skemtanir, safnað hefur Ólafur Davíðsson (bls.: 405)

Þriðja bindi:

  • Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, safnað og samið hefur Ólafur Davíðsson (bls.: 432)

Fjórða bindi:

  • Íslenzkar þulur og þjóðkvæði safnað hefur Ólafur Davíðsson (bls.: 403)
Ástand bókar: gott, vel með farið og í upphaflegu bandi
Íslenskar gátur skemtanir víkivakar og þulur - Ólafur Davíðsson, Jónas Árnason

kr.8.500

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 2,9 kg
Ummál 17 × 8 × 24 cm
Blaðsíður:

1397 (öll bindin)

ISBN

Ekkert

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni án hlífðarkápu

Útgefandi:

Hið íslenska bókmenntafélag

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1964 / 1. útgáfa 1887-1903 Hið íslenzka bókmenntafélg

Höfundur:

Jónas Árnason (safnaði), Ólafur Davíðsson [safnaði]