Hundurinn togar í tauminn, hvað er til ráða?
Líklega er algengasta vandamál hundeigenda það að hundurinn togi í tauminn þegar farið er út að ganga. Í þessari bok skýrir Turid Rugaas út hvernig bæði má koma í veg fyrir vandamálið og leysa það sem nú þegar hefur farið úrskeiðis, í eitt skipti fyrir öll. Með auðskildum, einföldum texta og ljósmydnum sýnir hún hvernig kenna má hundinum á jákvæðan hátt, skref fyrir skref, að ganga rólega við slakan taum.
Norski hundaþjálfarinn Turid Rugaas náði heimsathygli með bók sinni „On talking Terms With Dogs: Calming Signals,“ sem hefur, ásamt öðrum bókum hennar um atferli og þjálfun hunda, verið þýdd á fjölmörg tungumál og gefin út víða um heim. Turid er stofnandi og eigandi Hagen Hundeskole en vinsældir hennar sem fyrirlesari og námskeiðsstjórnandi eru slíkar að stór hluti tíma hennar fer í ferðalög um heiminn til að kenna manneskjum að skilja og þjálfa þessa fjórfættu félaga sína. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Hundurinn togar í tauminn, hvað er til ráða? er skipt niður í 14 kafla, þeir eru:
- Formáli höfundar
- Hvers vegna toar hundurinn?
- Að ganga við slakan taum – stutt yfirlit
- Hugsanleg vandamál
- Búnaður sem ætti að forðast
- Þjálfun með tenginu
- Hvolpurinn
- fullorðinn hundur sem togar
- Í dagsins önn, þegar á reynir
- Á námskeiði
- Að lokum
- Rómur
- Turid Rugaas
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.