Fyrir hnefafylli af peningum
Tuttugu fátækir og aðframkomnir bændur höfðu staulast fimm hundruð og fimmtíu kílómetra yfir Apachaland – til að sárbæna mexíkönsk yfirvöld um að frelsa börn, sem indíánarnir höfðu rænt.
Kveinstöfum þeirra var svarað með byssustingjum og þeim engin samúð sýnd. Hermennirnir hröktu þá vonlausa á brott.
Ungur gringo, pistoléro-inn Morgan Kane var sá eini, sem gat hjálpað þeim. Hann var fús til að fylgja þeim yfir auðnina fyrir hnefafylli af pesos – kannski þó fyrst og fremst vegna þess að foringi bændanna var Pauline Trenton, dóttir hvíts trúboða og einstaklega vel vaxin … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.