Fótboltafélagið Falur á heimavelli
Falur er heiti á hollenskum teiknimyndasögum sem segja frá ærslakenndum ævintýrum samnefnds knattspyrnuliðs Fótboltafélagið Falur. Sögurnar eru samvinnuverkefni íþróttablaðamannsins John le Noble og teiknarans Toon van Driel, sem kalla sig Joop & Toon. Sögurnar hófu göngu sína árið 1973 og hafa komið út óslitið til þessa dags, fyrst í dagblöðum og bókum en í seinni tíð á íþróttavefsíðunni NUSport. (Heimild: WikiPedia)
Sagan hefst við upphaf undirbúningstímabils Fótboltafélagsins Fals fyrir komandi leiktíð í hollensku deildinni. Leikmenn eru einn af öðrum kynntir fyrir hinum nafnlausa þjálfara félagsins, má þar nefna fyrirliðann Berta, markvörðinn Dagsson, varnarjaxlinn Fauta, suður-ameríska framherjann Marínó-Marínó Sólbrendó og ofvitann Baldvin Veitvel. Æfingarnar ganga afleitlega enda leikmennirnir flestir fáráðar eða lánlausir með öllu.
Keppnistímabilið byrjar illa og Falsmenn eru 14:1 undir gegn Hármenningum í leikhléi. Styrktaraðili Fals, Nebbi flippari siðblindur framleiðandi hvers kyns hrekkjatækja, tekur þá málin í sínar hendur. Með hvers kyns bellibrögðum tekst honum að tryggja liði sínu sigurinn í hverri viðureigninni á fætur annarri uns Falsmenn standa uppi sem meistarar.
Ástand: innsíður góðar og kápan góð.