Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu

Enn af raunum Emblu Þorvarðardóttur

Þegar Embla fréttir að kærastinn hennar ætli að segja henni upp ákveður hún að grípa til sinna ráða. Hún stefnir ótrauð að því að ævintýrið sem líf hennar er fái hamingjuríkan endi þrátt fyrir tímabundið mótlæti og því upphefst leit að nýjum prinsi. En því miður lýtur líf Emblu ekki sömu lögmálum og ævintýri. Froskar breytast ekki í prinsa heldur breytast prinsar í froska, hvorki vinalegir dvergar né hjálplegar álfkonur verða á vegi hennar, aðeins forhertir kapítalistar og gallharðir kommúnistar. Í stað eitraðra epla eru talandi plómur, í stað illkvittinna stjúpmæðra birtast naktar stjúpmæður og í stað fallegra ballkjóla koma við sögu allt of þröngar gallabuxur og herðapúðar. Sprenghlægilegt framhald bókarinnar Ég er ekki dramadrottning sem engin unglingsstúlka má láta fram hjá sér fara! (Heimild: Bókatíðindi)

Ástand: gott, bæði innsíður og kápa

Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu - Sif Sigmarsdóttir - Mál og menning 2007

kr.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,490 kg
Ummál 16 × 2 × 24 cm
Blaðsíður:

195

ISBN

9789979329077

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Mál og menning

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2007

Höfundur:

Sif Sigmarsdóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu”