Dularfullu sporin
Bók þessi er áttunda ævintýri fimmmenninganna og Snata. Í upphafi bókarinnar komast þau að því að þau hafa verið í fjórar vikur í sumarleyfi án þess að komast í tæri við nokkra dularfulla viðburði, síðan byrjar ævintýrið. Margir hafa sagt það að þessi bók væri með þeim bestu í Dularfulla flokknum og nær bókinni Dularfulla hálsmenið sem hvarf (The mystery of the missing necklace) mjög vel. Sú bók kom út hjá Iðunn 1964.
Ástand: gott, innsíður góðar ekkert kort en hlífðarkápan þreytt