Draumar og dulskyn
Draumar þeir og dulskynjanafrásagnir, sem hér birtast, eru skráðar eftir Jósefínu Njálsdóttur frá Norðfirði á Ströndum. Hún hefur lifað langa starfsævi; er ein þeirra mörgu alþýðukvenna, er ekki hafa kosið að stilla sér þar, sem sviðsljós veraldarhyggjunnar er sterkast.
Jósefína fékk í vöggugjöf draumskyn og dulvitund næmari en almennt gerist. Hún hefur því bæði í vöku og svefni, skynjað margt það, sem hulið er flestra augum, og á þann hátt órað fyrr en aðra fyrir ýmsu því, er í vændum var. Þrátt fyrir það, að við lifum á járngrárri efnishyggjuöld eru margir, sem vilja gefa gaum að því, sem liggur utan við þá kaldrifjuðu raunvitund, sem öllum er augljós. Þetta fólk finnur væntanlega í stuttorðum frásögnum Jósefínu eitthvað við sitt hæfi. Einkum eru draumar Jósefínu merkilegir og hafa margir þeirra verið fyrirtboðar stórra tíðinda. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: innsíður og kápuefni gott en hlífðarkápan þreytt.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.