Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna
Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna eru hugverk eftir 180 þingeyskar konur. Árið 2001 voru liðin 50 ár frá því að Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga endurreisti Menningarsjóð þingeyskra kvenna. Til að minnast þessara tímamóta á sem veglegastan hátt ákvað stjórn sjóðsins að gefa út bók með hugverkum eftir þingeyskar konur.
Í verkinu sem fékk nafnið Djúpar rætur eru sögur, ljóð og lög eftir 180 þingeyskar konur. Kveðskapurinn er frá því um miðja átjándu öld og fram til ársins 2002.
Hér er um að ræða margbreytilegt efni, dýrt kveðin ljóð, frásagnir og allt þar á milli – margt af því tærasta og hugljúfasta sem ort hefur verið á íslenska tungu. Bókin gefur dýrmæta sýn á tungutak kvenna, tungumálið sem börnin innbyrða með móðurmjólkinni og á hvað drýgstan þátt í að skapa grunninn að íslensku máli.
Bókin Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna er skipt niður í höfunum í stafrófsröð
Ástand: ný (ennþá í plastinu)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.