Búrið
Agla afplánar dóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Ekkert bíður hennar utan múranna og Sonja ástkona hennar er horfin á braut. Agla er því fljót að grípa tækifærið þegar fulltrúi erlends stórfyrirtækis biður hana um aðstoð í máli sem ekki má fara hátt. Það snýst um flókið fjármálamisferli og þar er hún á heimavelli. Með aðstoð Maríu, sjálfstætt starfandi blaðamanns, ræðst Agla til atlögu við hákarlana.
Álkóngurinn Ingimar á sér einskis ills von en þegar María fer að spyrja óþægilegra spurninga bregst hann snarlega við – og það er leikur kattarins að músinni. Í kjallaranum heima hjá honum liggja hins vegar dýnamítstangir sem hann veit ekki af og bíða réttu stundarinnar … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Verk þetta fékk verðlaunin: Blóðdropinn, verðlaun Hins íslenska glæpafélags, 2018
Ástand: gott bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.